Knatthús á Ásvöllum árið 2017?

knatthus

Knattspyrnudeild Hauka hefur stefnt að því leynt og ljóst síðustu 3 árin að láta knatthús á Ásvöllum verða að veruleika sem allra fyrst.

Nú hefur verið hrint af stað undirskriftarsöfnun þar sem bærinn er hvattur til að gera samning við Hauka sambærilegan og gerður var við rekstrarfélagið sem á og rekur Risann upp á Kaplakrika svo hægt sé að reisa knatthús á Ásvöllum á næsta ári.

Það er full þörf á að bæta aðstöðu fyrir okkar iðkendur og mun þetta hús gera heilmikið til að bæta hana og þá sérstaklega fyrir þá yngstu.


Til að sýna stuðning þinn í verki þá geturðu smellt hér og skrifað undir.