Haukar – Þór á Skírdag kl. 19:15

kiddi marÞriðji leikur Hauka – Þórs Þorlákshafnar verður í dag, skírdag kl. 19:15 í Schenkerhöllinni.

Staðan er 1 – 1, en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst áfram i undanúrslit. Báðir leikirnir hafa unnist á útivelli og hafa leikirnir verið hin besta skemmtun. Leikurinn í kvöld er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið en Haukarnir eru staðráðnir í því að verja heimavöllinn og ná forystu í einvíginu.

Við hvetjum allt Haukafólk til að mæta snemma á Ásvelli, fá sér börger og hita vel upp fyrir þennan stórleik.