Topplið 1. deildar mætir á Ásvelli á fimmtudaginn kl. 19:15

Það verður heldur betur barátta á Ásvöllum á fimmtudaginn þegar Þróttur R. mætir í heimsókn gegn okkar strákum sem hafa unnið síðustu tvo leiki og sína alla heimaleiki á þessu tímabili.  Leikurinn hefst kl. 19:15. Haukar eru sem stendur í 6. sæti deildarinnar með 12 stig en Þróttarar eru á toppnum eins og áður segir […]

Selfoss – Haukar í dag

Næsti leikur meistaraflokks karla er gegn liði Selfoss í dag, fimmtudag, kl. 19:15. Leikurinn fer fram á JÁVERK-vellinum á Selfossi. Tilvalið að skella sér austur í blíðunni og styðja okkar stráka til sigurs í kjölfar 4-0 sigurs á Gróttu í sl. föstudag. Strákarnir skelltu sér í myndatöku í gær ásamt fleiri flokkum knattspyrnudeildar hjá Binna […]

Bílaþvottur körfunnar

Meistaraflokkur karla í körfuknattleik mun standa fyrir bílaþvotti á sunnudaginn næstkomandi (28.6.2015) en þetta er partur af fjáröflun liðsins sem heldur á sterkt mót á Ítalíu í byrjun ágúst. Staðsetning er við Íþróttahúsið á Ásvöllum, vallarmegin, og stendur yfir milli kl. 14:00 og 20:00. Verð: Fólksbíll 7.000 kr. / Jepplingur 9.000 kr. / Stærri jeppar 11.000 […]

Finnur Atli í lið við Hauka

Finnur Atli Magnússon bætist í leikmannahóp Hauka fyrir komandi átök en Finnur skrifaði undir samning um að taka slaginn með liðinu í Domino‘s deild karla á næsta tímabili. Finnur, sem kemur frá KR, var að skila af sér 7,5 stigum og um 5 fráköstum í leik á síðustu leiktíð á þeim 18 mínútum sem hann […]

Glæsilegur 4-0 sigur á Gróttu – Björgvin með þrennu!

Haukar unnu glæsilegan 4 – 0 sigur á Gróttu í gærkvöldi á Ásvöllum þar sem Björgvin Stefánsson skoraði þrennu. Aron Jóhannsson gerði fyrsta mark leiksins á 43 mínútu sem var algjört drauma mark; skot fyrir utan vítateig í skeytin, óverjandi fyrir markvörð Gróttu. Staðan 1-0 í hálfleik en fólk var varla sest í seinni hálfleik […]

Haukar – Grótta klukkan 19:15 í dag.

Allir á Ásvelli í kvöld þegar Haukar taka á móti Gróttu kl. 19.15! Fylgjum eftir góðu gengi á heimavelli og hvetjum strákana til sigurs! Húsið opnar kl. 18:00 þar sem hægt verður að kaupa pizzu sneiðar fyrir leik og fá sér kaldann Áfram Haukar!

Fótbolti fyrir börn fædd 2009 og 2010 eru byrjaðar

Fótboltaæfingar fyrir börn fædd 2009 og 2010 eru byrjaðar í 8. flokki en æfingar fara fram á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 16.30 – 17.15. Mæting við gervigrasið. Hvetjum við foreldra að mæta með börnin sín á æfingu í dag fimmtudag og/eða þriðjudag til að prófa en þjálfari er Andri Rafn Ottesen sem einnig þjálfar […]

Greining á samningum íþróttafélaga

Nú í vikunni kom út skýrsla um greiningu samninga Hafnarfjarðarbæjar við íþróttafélög. Greiningin er að mati aðalstjórnar Hauka ágætlega unninn og gott verkfæri til að vinna að næstu verkefnum í uppbyggingu íþróttamannvirkja sem og að skapa grundvöll fyrir jafnræði og gegnsæi í stuðningi bæjarfélagsins til íþróttafélaga. Þá eru í greiningunni atriði sem nýtast munu Haukum […]