Finnur Atli í lið við Hauka

Finnur Atli Magnússon bætist í leikmannahóp Hfinnurundirskrauka fyrir komandi átök en Finnur skrifaði undir samning um að taka slaginn með liðinu í Domino‘s deild karla á næsta tímabili.

Finnur, sem kemur frá KR, var að skila af sér 7,5 stigum og um 5 fráköstum í leik á síðustu leiktíð á þeim 18 mínútum sem hann spilaði að meðaltali. Er Finni ætlað að þétta raðirnar í teignum en hann er 206 cm.

Þá er búið að endurnýja samninga við alla þá leikmenn sem spiluðu fyrir liðið á síðustu leiktíð fyrir utan Sigurð Þór Einarsson sem lagði skóna á hilluna eftir tímabilið.

 

kjuklingarundirsk
Efri mynd/ JBÓ – Finnur Atli og Kjartan Ásmundsson, formaður kkd. Hauka, handsala samning

Neðri mynd/ JBÓ – Partur af þeim leikmönnum endurnýjað hafa sína samninga