Bílaþvottur körfunnar

bílaþvotturMeistaraflokkur karla í körfuknattleik mun standa fyrir bílaþvotti á sunnudaginn næstkomandi (28.6.2015) en þetta er partur af fjáröflun liðsins sem heldur á sterkt mót á Ítalíu í byrjun ágúst.

Staðsetning er við Íþróttahúsið á Ásvöllum, vallarmegin, og stendur yfir milli kl. 14:00 og 20:00.

Verð: Fólksbíll 7.000 kr. / Jepplingur 9.000 kr. / Stærri jeppar 11.000

Hægt er að mæta á staðinn eða hafa samband við Emil í síma 669-9414 eða 659-1253. Fyrir 500 kr. aukalega sækjum við og skilum bílnum innan höfuðborgarsvæðisins.

Innifalið í þvotti er þurrkun, bón, ryksugun og strokið af mælaborði og öðrum vínil.