Haukar – Valur laugardaginn kl. 16:00

Haukarnir sýndu snilldar leik í fyrsta leiknum í undanúrslita einvíginu á móti Valsmönnum að Hlíðarenda. Strákarnir sýndu sparihliðarnar og hafa verið að spila betur og betur eftir því sem á liðið hefur úrslitakeppnina. Eftir tvo góða sigra á móti FH þá komu Haukarnir dýrvitlausir til leiks að Hlíðarenda og yfirspiliðu deildarmeistarana í fyrsta leiknum. Bæði […]

Haukar – Tindastóll kl. 19:15 í kvöld – Miðasala hefst kl. 18

Haukar munu etja kappi við Tindastól í fjórða leiknum í undanúrslitum Dominos deildar í kvöld kl. 19:15 í Schenkerhöllinni. Haukar unnu frábæran sigur í Síkinu í þriðja leiknum og spiluðu mjög vel, allt liðið var vel gírað og baráttan var til fyrirmyndar. Strákarnir eru staðráðnir í að ná fram oddaleik á Sauðárkróki á föstudaginn og […]

Brjótum blað í sögu körfunnar

Árangur bæði yngri flokka og meistaraflokka Hauka hefur sjaldan verið betri. Þrátt fyrir misjafnt gengi liðanna í úrslitakeppninni þá enduðu liðin í 3ja sæti Dominosdeilda KKÍ. Yngri flokkarnir blómstra undir stjórn góðra þjálfara þar sem að yngri leikmönnnum er gerð grein fyrir mikilvægi þeirra í uppgangi deildarinnar. Haukamenn eru valdir fram yfir aðra að öllu […]

Óskar Ármannsson mun stýra kvennaliði Hauka á næsta tímabili

Handknattleiksdeild Hauka réð í dag Haukamanninn, Óskar Ármannsson sem næsta þjálfara kvennaliðs deildarinnar. Þetta var tilkynnt í hádeginu í dag á blaðamannafundi sem Handknattleiks deildin hélt í Schenkerhöllinni. Óskar er öllum hnútum kunnugur hjá Haukum og hefur starfað sem þjálfari hjá deildinni frá 1998 með góðum árangri. Óskar hefur að mestu verið aðstoðarþjálfari mfl. kk. […]

Gunnar Magnússon mun taka við liði Hauka á næsta tímabili

Handknattleiksdeild Hauka gekk frá ráðningu við Gunnar Magnússon, fyrrverandi þjálfara ÍBV og aðstoðarþjálfara A landsliðs karla, í hádeginu. í dag. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í Schenkerhöllinni í hádeginu. Patrekur var búinn að tilkynna að þetta yrði hans síðasta ár sem þjálfari og ljóst að það þurfti öflugan mann í brúna fyrir næsta tímabil. Handknattleiks […]

Þriðji leikur stelpnanna í kvöld

Hauka stelpurnar fara suður með sjó í kvöld og munu heimsækja Keflavíkur stúlkur í þriðja leik undanúrslitanna í Dominos deild kvenna. Leikurinn hefst kl. 19:15 í TM höllinni í Keflavík. Stelpurnar okkar eru komnar með bakið upp við vegginn fræga eftir að Keflavík lagði Haukanna í öðrum leiknum hér í Schenkerhöllinni síðasta laugardag og því […]

Afmælishlaup Hauka

Afmælishlaup Hauka. Sunnudaginn 12. apríl Kl: 11:00. Allir mæta og hlaupa saman Fjölskyldan, krakkarnir,amma og afi Boðið verður upp á 840m. 4,8km. og 8,4 km. hlaup. Öll börn fá glaðning og gleði að loknu hlaupi. Allir aldurshópar og hér er gleðin í fyrirrúmi.