Firma- og hópakeppni Hauka 2009

Firma- og hópakeppni Hauka verður að þessu sinni haldin laugardaginn 11. apríl 2009. Leikið verður á Ásvöllum, á tveim löglegum körfuboltavöllum samtímis, fyrir utan úrslitaleikinn sem verður leikinn á aðalvellinum. Leikið verður að mestu eftir venjulegum körfuboltareglum, nema leikurinn verður 2 X 12 mínútur, og klukkan aðeins stöðvuð síðustu 2 mínúturnar í leiknum. Til að […]

Oddaleikur á miðvikudag

Haukar töpuðu fyrir KR í gærkvöldi í 4. leik liðanna í úrslitum Iceland Express-deild kvenna 65-56. Þar með þarf oddaleik til að knýja fram Íslandsmeistaratitilinn og leikið verður á Ásvöllum á miðvikudag kl. 19.15. Leikurinn í gær var sveiflukenndur og voru Haukar yfir 18-28 um miðjan 2. leikhluta. Þá kom frábær leikkafli frá KR þar […]

Haukastelpur N1 deildarmeistarar 2009

Haukastelpur urðu í dag deildarmeistarar N1 deildar kvenna í handbolta þegar þær sigruðu FH á Ásvöllum í næst síðustu umferð deildarinnar. Leikurinn var jafn á flestum tölum en endaði þó með 33 – 30 sigri Hauka og fögnuðu Haukastelpur því innilega í lok leiksins þegar ljóst var að þær hefðu sigrað N1 deildinar.   Leikurinn […]

Fjórir Haukaleikmenn á leiðinni til Noregs

Á mánudaginn næstkomandi munu þau, Linda Rós Þorláksdóttir, Dagbjört Agnarsdóttir, Ómar Karl Sigurðsson og Albert Högni Arason fara til Noregs en þau öll hafa skrifað undir samning við norsk félagslið og munu spila með þeim næsta sumar. Linda Rós og Albert Högni gengu til liðs við Hauka nú í vetur, Linda Rós frá Keflavík og […]

Verða Haukar tvöfaldir N1-deildarmeistarar um helgina

Það verða tveir stórleikir á Ásvöllum um helgina í N1-deildinni. Fyrri leikurinn er á morgun í N1-deild kvenna svo á sunnudaginn er leikur í N1-deild karla. Sigri Haukar í leikjunum verða þeir deildarmeistarar í ár. Haukastelpurnar mæta FH á morgun og hefst leikurinn klukkan 16:00.  Haukastrákarnir leika svo gegn HK á sunnudaginn og hefst sá […]

Haukastúlkur komnar í 2-1

Það var boðið uppá frábæran körfubolta á Ásvöllum í gærkvöldi þegar Deildarmeistarar Hauka tóku á móti Bikarmeisturum KR í 3 leik í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Leikurinn var frábær skemmtun og alls ekki fyrir hjartveika en gríðarleg spenna var á lokamínutum leikssins þar sem Slavica setur risastórara þriggja stiga körfu niður og Haukastúlkur og áhorfendur Hauka […]

Tímabilið búið hjá Haukum

Haukar töpuðu á þriðjudagskvöld fyrir Fjölni í oddaleik liðanna um sæti í úrslitum 1. deildar karla. Það verða því Fjölnismenn sem mæta Val í úrslitum um laust sæti í Iceland Express-deildinni að ári. Haukar leika því enn eitt árið í 1. deild en stefnan fyrir tímabilið var að fara upp um deild. Leikurinn á þriðjudag […]

Haukar deildarmeistarar á laugardag? Hvað segir Díana?

Eins og fram kom í gær á heimasíðunni eiga Haukastepur á að verða deildarmeistarar í N1 deild kvenna á laugardaginn en þá mætir liðið FH á Ásvöllum. Með sigri tryggja Haukastelpur sér deildarmeistaratitilinn en þær eru nú tveimur stigum á undan Stjörnunni en hafa betur í innbyrðis viðureignum. Það þýðir að nái Stjarnan að jafna […]

Verða Haukastelpur deildarmeistarar á laugardag?

Nú fer að styttast í lok N1 deildar kvenna í handbolta en næst síðasti leikur Haukastúlkna fer fram á laugardaginn en þá munu þær mæta liði FH á Ásvöllum. Eins og staðan er núna eru Haukastelpur í efsta sæti deildarinnar með 34 stig en í öðru sæti er lið Stjörnunnar með 32 stig. Þessi tvö […]