Oddaleikur á miðvikudag

Haukar töpuðu fyrir KR í gærkvöldi í 4. leik liðanna í úrslitum Iceland Express-deild kvenna 65-56.

Þar með þarf oddaleik til að knýja fram Íslandsmeistaratitilinn og leikið verður á Ásvöllum á miðvikudag kl. 19.15.

Leikurinn í gær var sveiflukenndur og voru Haukar yfir 18-28 um miðjan 2. leikhluta. Þá kom frábær leikkafli frá KR þar sem þær minnkuðu muninn og komust yfir og leiddu um miðjan 3. leikhluta 36-30.

KR náði mest 18 stiga mun 57-39. Haukar náðu að minnka þetta í 58-54 en nær komust þær ekki og KR vann.

Oddaleikurinn verður á miðvikudag og þá er skyldumæting hjá Haukafólki.

ÁFRAM HAUKAR!!!!!!!!!!!