Haukar-KA/Þór ESSÓ deild kvenna

Stelpurnar unnu góðan „skyldusigur“ á norðanstúlkum á Ásvöllum í kvöld 32-20. Við skoruðum fyrsta markið en gestirnir komust í 1-3. Stelpurnar okkar komust yfir 4-3 en leikurinn var jafn framan af fyrri hálfleik, 4-4, 6-6, 8-8 en þá skriðu Haukarnir yfir og höfðu góða forystu í hálfleik 17-10. Seinni hálfleikur var lítið spennandi þar sem […]

Ísland-Pólland á Ásvöllum

Minnum á að Ísland-Pólland verður í beinni á Ásvöllum í kvöld. kl. 18.30. Sýnt verður á stóru tjaldi í félagsaðstöðunni á annarri hæð. Hittumst hress og horfum á leikinn saman í skemmtilegum félagsskap

Haukar eru bestir ………….

Ekki var ætlun okkar að móðga neinn, en eitthvað virðast skrifin hér hafa farið fyrir brjóstið á mönnum. En þar sem við erum “svoddan hrokagikkir” þá bökkum við ekki með það, að sunnudaginn 26. janúar teljum við stelpurnar okkar hafa sýnt okkur Haukum hverjar voru bestar þann daginn. Sáum ekki betur en þær hafi unnið […]

Orðabókin

Í dag útskýrum við orðin “í dag”. “Í DAG” er eitthvað sem er í dag. Ekki eitthvað sem var í gær eða verður á morgun, heldur Í DAG. Góðar stundir

Haukar-ÍBV ESSO deild kvenna

Stelpurnar unnu FRÁBÆRAN sigur á ÍBV núna rétt áðan 27-25. Leikurinn byrjaði ekki vel hjá okkur, gestirnir skoruðu fyrsta markaði og komust í 1-5. Ekkert gekk í sókninni hjá okkur og vörnin var ekki að smella. ÍBV virtist hafa leikinn í höndum sér, komust í 2-6, 4-10 en þá tóku okkar stelpur við sér og […]

Ásvellir í dag

Minnum á leikinn hjá stelpnum í dag kl. 14.00 á Ásvöllum er þær fá ÍBV, efsta lið deildarinar í heimsókn. Þessi tvö lið hafa verið í hópi bestu liða undanfarin ár og hafa leikið margan baráttuleikinn og því hægt að lofa skemmtilegum og spennandi leik í dag. Eftir leikinn þá höldum við kyrru fyrir á […]

HM á Ásvöllum

Eins og menn vita styttist óðum í að HM í Portúgal byrji. Ísland á sinn fyrsta leik kl. 17.00 á morgun, mánudag við Ástralíu. Það verður kveikt á sjónvarpinu á Ásvöllum, svo Haukamenn eru hvattir til að koma og horfa á leikina saman og styðja við bakið á landsliðinu. Leikir okkar riðlinum eru þessir: Mánudaginn […]

Fyrsta innanhúsmótaröðin í golfi

18 HOLU GOLFVÖLLUR VÍTT OG BREYTT UM ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐINA ÁSVÖLLUM. “Mini” golfmót Handknattleiksdeildar HAUKA. Handknattleiksdeild Hauka hefur ákveðið að efna til þriggja innanhús-golfmóta í vetur og verður fyrsta mótið laugardaginn 25 jánúar. Keppt verður í tveim flokkum, barna / unglinga flokki og “fullorðinsflokki”. Í barna og unglingaflokki verða veitt verðlaun fyrir hvern dag, en í “fullorðinsflokki” […]

Haukar-Víkingur, ESSÓ deild kvenna

Stelpurnar unnu góðan sigur 28-27 í skemmtilegum leik við Víking á Ásvöllum í kvöld. Þær skoruðu fyrsta markið og voru með yfirhöndina í byrjun, 3-1, 6-3, 7-4 en gestirnir náðu að jafna 8-8 og komust yfir 8-9 eftir ca 20 mínútna leik. Gústaf tók leikhlé og “messaði” yfir stelpunum og tóku þær vel við sér […]

Styðjum landsliðið

Á morgun þriðjudag mun Ísland leika sinn síðasta leik hér á landi fyrir HM í Portúgal. Strákarnir okkar eiga skilið að fá öflugan stuðning íslensku þjóðarinnar. Kveðjum strákana með stæl í Höllinni, þriðjudaginn 7.janúar kl.20:00. ÁFRAM ÍSLAND