Haukar-KA/Þór ESSÓ deild kvenna

Stelpurnar unnu góðan „skyldusigur“ á norðanstúlkum á Ásvöllum í kvöld 32-20. Við skoruðum fyrsta markið en gestirnir komust í 1-3. Stelpurnar okkar komust yfir 4-3 en leikurinn var jafn framan af fyrri hálfleik, 4-4, 6-6, 8-8 en þá skriðu Haukarnir yfir og höfðu góða forystu í hálfleik 17-10. Seinni hálfleikur var lítið spennandi þar sem yfirburðir okkar voru þó nokkrir.
Í seinni hálfleik var meiri hluti byrjunarliðsins á bekknum og þær ungu fengu að spreyta sig ásamt einni „gamalli“, en Brynja Steinsen er mætt aftur og bjóðum við hana velkomna til leiks að nýju.