Haukur aftur á EM

Um helgina verða leikirnir að sjálfsögðu sýndir á stjóru tjaldi á Ásvöllum. Það er ekki spurning að nú mæta allir í stemminguna og hvetja strákana, þeir eiga það svo sannarlega skilið. Áfram Ísland.

Ísland-Þýskaland

Maður á nú bara ekki orð. Þvílík frammistaða hjá strákunum. Að sigra Þjóðverja örugglega 29-24 er alveg ótrúlegt, hreint stórkostlegur sigur. Ísland er efst í riðlinum, fyrir ofan heimsklassa þjóðirnar Spán og Þjóðverja og heimsmeistara Frakka. Eftir þennan glæsilega sigur er ljóst að Íslendingar eru eitt af fjórum liðum sem spila um Evrópumeistaratitilinn. Við gerum […]

Haukur á EM

Leikurinn í kvöld kl. 19.00 Ísland-Þýskaland verður sýndur á stóru tjaldi á Ásvöllum. Mætum öll og hvetjum strákana saman. Kaffi og aðrar léttar veitingar á staðnum.

Styrkjum landsliðið

Taktu þátt í að styrkja íslenska landsliðið í handknattleik. Með því að hringja í þetta símanúmer907 2800 eru 800 kr. skuldfærðar á símanúmer þitt. Þetta er styrktar símanúmer íslenska landsliðsins í handknattleik. Takk fyrir þátttökuna..áfram Ísland Gerum stuðninginn lifandi, segðu öllum frá þessu….!

Ísland-Júgóslavía

Landsliðið okkar vann frábæran sigur á Júgóslavíu í dag. Leiknum lauk með stórsigri okkar manna 34-26. Staðan í hálfleik var 16-14 en í síðari hálfleik tóku strákarnir öll völd á vellinum og náðu mest 11 marka forystu og slökuðu aldrei á og skoruðu úr hverju hraðaupphlaupinum á eftir öðru. Bæði lið voru þung í byrjun, […]

Ísland – Frakkland

Eftir ótrúlegar lokamínutur í leik við heimsmeistara Frakka varð niðurstaðan jafntefli 26-26. Ísland hafði yfir 26-23 þegar örskammt var til leiksloka. Við misstum menn útaf og dómararnir sýndu vægast sagt algjört kæruleysi og virtust hreinlega vera að rétta Frökkum knöttinn. T.d. þegar Halldór er hreinlega tekinn í hnébeygju og það er dæmt á hann sóknarbrot […]

Breyting ESSO-deild karla

Mótanefnd HSÍ gerir breytingar á leikjafyrirkomulagi ESSO-deildar karla. Leikir 15.umferðar verða færðir til 20. – 22.febrúar. Fyrstu leikir eftir EM í Svíþjóð verða þá þessir: Föstudagur 8. febrúar 2002 Austurberg kl. 20.00 ÍR – Víkingur Digranes kl. 20.00 HK – FH Höllin Akureyri kl. 20.00 Þór Ak. – Grótta KR Selfoss kl. 20.00 Selfoss – […]

Þorrablót

Þorrablót Hauka verður haldið á Ásvöllum föstudaginn 1. febrúar. Húsið opnar kl. 19.30 og miðaverð er aðeins kr. 2.500. Miðasala fer fram á Ásvöllum.

Ísland-Sviss

Íslenska landsliðið fór á kostum í leiknum í dag er þeir hreinlega völtuðu yfir Svisslendinga sem áttu ekki roð í strákana okkar. Staðan í hálfleik var 15-9 og lauk leiknum með stórsigri okkar manna 33-22. Íslenska liðið var að spila einn sinn besta leik í fjölda ára, liðsheildin góð, vörnin frábær, markvarslan góð og sóknin […]

EM Svíþjóð

Strákarnir unnu frábæran sigur á Slóvenum í dag 31-25. Staðan í hálfleik var 15-11 fyrir Ísland. Þeir létu dramatískan endi á leikunum í gær þegar Spánverjar náðu að merja jafntefli, ekki hafa áhrif á sig í leikunum í dag og léku mjög vel og unnu öruggan sigur. Nú bíðum við bara spennt eftir leiknum við […]