Ísland – Frakkland

Eftir ótrúlegar lokamínutur í leik við heimsmeistara Frakka varð niðurstaðan jafntefli 26-26. Ísland hafði yfir 26-23 þegar örskammt var til leiksloka. Við misstum menn útaf og dómararnir sýndu vægast sagt algjört kæruleysi og virtust hreinlega vera að rétta Frökkum knöttinn. T.d. þegar Halldór er hreinlega tekinn í hnébeygju og það er dæmt á hann sóknarbrot eða eitthvað sem enginn virðist vita hvað var. Strákarnir höfðu yfirhöndina nánast allann leikinn og var það mest að þakka Guðmundi okkar Hrafnkelssyni sem varði meistaralega í dauðafærunum, alveg ótrúlega mikilvæg skot. Guðjón Valur og Ólafur tóku af skarið í sókninni þó hægt færi um Óla seinni part leiks þar sem Frakkarnir tóku heldur hart á honum. Þegar 2 sekúndur voru eftir áttum við aukakast sem að Guðjón Valur bombaði í þverslána eftir að hafa fengið þriðja boltann inná völlinn. Í viðtalinu við Guðmund eftir leikinn tjáði hann mönnum að Franski þjálfarinn hefði komið til hans og sagt honum að Íslendingar hefðu átt sigur skilið. Á vísi.is segir Guðmundur Guðmundsson um dómarana: „Þetta eru bara aular.“ Mörk Íslands: Patrekur 7(3), Ólafur 5, Guðjón Valur 5, Dagur 4, Aron 3, Einar Örn 1, Sigfús 1. Varin skot: Guðmundur 11 skv.visir.is, 16 skv.mbl.is
Þrátt fyrir mikið mótlæti hafa strákarnir staðið sig frábærlega og við sendum þeim baráttukveðjur fyrir leikinn í dag. Áfram Ísland.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…