Ásgeir Örn sæmdur silfurkrossi Hauka

Hafnarfjarðarbær heiðraði þá tvo hafnfirska liðsmenn íslenska landsliðsins í handknattleik sem unnu til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking. Þeir Logi Geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson voru heiðraðir í hálfleik á Hafnarfjarðarmóti í handbolta sem fer fram í íþróttahúsinu við Strandgötu.

Við sama tilefni var Ásgeir Erni veittur silfurkross Knattspyrnufélagsins Hauka og Loga Geirssyni var gefinn blómvöndur frá Haukum af Ágústi Sindra Karlssyni formanni Hauka.

 

 

 

 


(Ásgeir Örn Hallgrímsson, Aron Kristjánsson og Logi Geirsso ná góðri stundu)


(Ásgeir Örn með silfurkrossinn sinn)