Valur – Haukar

HaukarStórleikur verður að Hlíðarenda í kvöld kl 19:15 þegar Haukastelpur mæta toppliði Vals. Nú er um að gera að mæta og styðja stelpurnar til dáða. Allir að mæta.

Áfram Haukar!!!!!

Valur – Haukar

Fimmtudaginn 8. júlí mun Vodafone-völlurinn loksins verða útivöllur okkar, en þá mætum við gestgjöfum okkar, Valsmönnum, í lokaleik fyrri umferðar Pepsideildar karla.

Búast má við skemmtilegum og spennandi leik og mikið er í húfi fyrir bæði lið. Nú hirðum við öll þrjú stigin.

Áfram Haukar 

Valur – Haukar

Í kvöld fer fram leikur í 12. umferð 1. deildar karla. Haukar mæta Val á Hlíðarenda og hefst leikurinn kl. 20:00. Valur er í efsta sæti deildarinnar með 21 stig. Síðasti tapleikur Vals var í 9. umferð gegn Fjölni í Grafarvogi en leikurinn fór 2 – 1. Í 8. umferð lagði Stjarnan Val 3 – 2 á Hlíðarenda. Mikill stígandi hefur verið leik okkar manna undanfarnar umferðir undir stjórn Daða Dervic og því einungis spurning hvenær þeir snúa blaðinu við.
Nú mæta allir á völlinn og styðja Hauka gegn bræðrafélaginu á Hlíðarenda.
ÁFRAM HAUKAR !