Tap en ei sár

Í gær sóttum við Keflavík heim í þriðja og síðasta leik þessara liða á þessu Íslandsmóti. Leikurinn var leikinn við kjöraðstæður, í smá golu og hlýindum. Lyktir leiksins urðu 5-2 fyrir heimamenn eftir að staðan í hálfleik hafði verið 2-0. Snemma í síðari hálfleik bættu heimastúlkur við þriðja markinu en Haukastúlkur svöruðu með tveimur mörkum og eigðu von. Heimastúlkur náðu síðan að bæta við tveimur mörkum og þar við sat. Mörk Hauka skoruðu Tatjana og Sara Rakel með sitt fyrsta fyrir Mfl.kv. (Mynd:VF/Jón Björn Ólafsson)