Víkingur R. – Haukar á morgun

HaukarÁ morgun munu Haukar heimsækja Víkinga heim í Fossvoginn en fjórir leikir fara fram í 8.umferð 1.deildarinnar á morgun. Leikurinn hefst klukkan 20:00. Við hvetjum alla til að fjölmenna í Víkina eða Haukum hefur gengið ágætlega með Víkinga undanfarin ár og er engin ástæða til að breyta því eitthvað á morgun.

Haukar sitja enn í 2.sæti deildarinnar með jafn mörg stig og Fjarðabyggð sem eru í 3.sæti deildarinnar en Selfyssingar eru efstir með 16 stig, þremur meira en Haukar og Fjarðabyggð.

Víkingar eru hinsvegar í 7.sæti með 8 stig en þeir gerðu 2-2 jafntefli í síðustu umferð gegn Aftureldingu. 

Hvetjum strákana til sigurs á morgun og fjölmennum í Fossvoginn, Áfram Haukar.