Glæstur sigur á Víkingum í kvöld

HaukarHaukar fóru með sigur úr bítum í viðureign sinni gegn Víking Reykjavík í Fossvoginum í kvöld, 3-1. Eftir að markalaus hafi verið í hálfleik kom Garðar Ingvar Geirsson Haukum yfir með laglegu marki. Víkingar jöfnuðu skömmu síðar með skalla marki frá Þorvaldi Sveini Sveinssyni en Haukaleikmennirnir gáfu þá í og skoruðu tvö lagleg mörk, það fyrra frá Hilmari Geir Eiðssyni og það síðara frá Guðjóni Pétri Lýðssyni.

Umfjöllun frá Fótbolti.net er hægt að lesa hér.

Og einnig er hægt að lesa viðtal við Andra Marteinsson eftir leik hér.

Með sigrinum eru Haukar því komnir á topp 1.deildarinnar með jafn mörg stig og Selfoss sem leika á morgun gegn Fjarðabyggð. Næsti leikur Hauka er gegn HK, fimmtudaginn 2.júlí á Ásvöllum en um er að ræða stórleik. Við hvetjum alla til að taka þann dag frá.