Uppskeruhátíð handknattleiksdeildar 28. maí n.k.

Brynjólfur Snær BrynjólfssonUppskeruhátíð handknattleiksdeildar verður haldin miðvikudagsköldið 28 mai, kvöldið fyrir uppstigningardag. Við ætlum að koma saman og fagna frábærum vetri. Matseðill kvöldsins verður grillhlaðborð ásamt fersku salati, gratineruðum jarðeplum með smá dassi af köldum og heitum sósum. Í eftirrétt verður kaffi og konfekt. Júlladiskó sér um tónlistina og stuðið. Verð aðeins kr. 2.500.

Áfram Haukar!