Tveir frá Haukum æfa með U21 um helgina

HaukarTveir leikmenn úr Haukum munu æfa með U21 árs landsliði Íslands í fótbolta nú um helgina. Það eru þeir Viktor Smári Hafsteinsson og Helgi Valur Pálsson. Báðir þessir strákar komu nýverið til Hauka, Viktor frá Keflavík en Helgi frá FH.

Þess má reyndar geta að fleiri drengir frá Haukum æfa með yngri landsliðum um helgina einnig. Þeir Grétar Snær Gunnarsson og Sverrir Bartolozzi æfa með U17 ára landsliðinu og Eggert Georg Tómasson með U19. 

Heimasíðan óskar strákunum góðs gengis um helgina!