Tvær unglingalandsliðsstelpur framlengja við Hauka

Áróra Pálsdóttir, Halldór Harri þjálfari meistaraflokks og Díana Sigmarsdóttir

Um helgina fór U18 lið Íslands í handknattleik kvenna til Gautaborgar til að taka þátt í undankeppni fyrir Evrópumótið.  Tvær Haukastúlkur voru með í för þær Ragnheiður Ragnarsdóttir og Áróra Pálsdóttir. En áður hafði Díana Sigmardóttir dregið sig úr hópnum vegna meiðsla. 

Fyrir skömmu bárust svo þær gleðifréttir að Handknattleiksdeild Hauka framlengdi á dögunum samninga sína við Áróru Pálsdóttur sem kom til Hauka um áramótin frá Aftureldingu og Díönu Sigmarsdóttur, sem uppalinn er hjá liði Selfoss.

Þessar stúlkur léku allar með unglingaflokk Hauka sl. vetur, en sá flokkur vann alla titla sem í boði voru. Þar að auki voru þær hluti af meistaraflokk Hauka sem hefur á að skipi ungu og feyki efnilegu liði. Haukar eru að sjálfsögðu stolltir af því að eiga fulltrúa í yngri landsliðum Íslands og var ekki annað að frétta en stelpurnar hafi staðið sig vel.

Ragnheiður Ragnarsdóttir 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…