Þórarinn Jónas Ásgeirsson ráðinn sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. Kári Sveinsson sem sjúkra- og styrktarþjálfari.

Knattspyrnudeild Hauka og Þórarinn Jónas Ásgeirsson hafa skrifað undir samning þess efnis að Þórarinn taki við sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla, auk þess er Þórarinn Jónas aðstoðarþjálfari 2.fl karla með Salih Heimi Porca.

Samið var til tveggja ára og um er að ræða skemmtilegt og krefjandi starf þar sem Þórarinn Jónas mun hjálpa Igor Bjarna við að byggja upp og þróa ungt og efnilegt lið Hauka.

Þórarinn Jónas þarf vart að kynna fyrir Haukafólki, en hann er 26 ára gamall og uppalinn Haukastrákur. Spilaði upp alla yngri flokka hjá félaginu og mikill gæðingur innan vallar sem utan. Hann mun klára KSÍ B þjálfaragráðuna núna í vor og stefnir enn hærra í þjálfun.
Þess má geta að Þórarinn Jónas á afmæli í dag, 4. Janúar. – Ef þið hittið á hann má alltaf gefa honum eitt stórt knús.

Ennig hafa Haukar samið við Kára Sveinsson, sjúkraþjálfara og styrktarþjálfara út árið 2020. Kári er menntaður sem íþróttasjúkraþjálfari frá King University í Bandaríkjunum og er að klára meistaranám í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands.

Ráðning Þórarins og Kára er liður í að styrkja þjálfarateymi Hauka enn frekar og mun þekking þeirra nýtast í að byggja upp öflugan meistaraflokk.

Haukar leggja mikla áherslu á að vera með framúrskarandi þjálfara innan sinna vébanda og byggja upp hágæða fótboltalið.

 

Áfram Haukar.

 

Þórarinn Jónas
Mynd: Hulda Margrét
Kári Sveinsson
Mynd: Jónatan Grétarsson

 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…