Strákarnir í mfl. karla í handbolta saman í hádegismat á Þremur Frökkum í dag

Úlfar Eysteinsson í hádeginu í dag ásamt nokkrum strákum úr mfl. karla, Heimir framkvæmdastjóri er lengst til vinstri á myndinniMeistaraflokkur karla fékk gott boð í dag en Úlfar á Þremur Frökkum bauð þeim í hádegismat. Úlfar hefur áður verið okkur innan handar og er hann sannkallaður Haukur í horni. Það sem einkennir stað Úlfars er vinalegt viðmót, hlýlegt umhverfi og alltaf frábær matur. Við þökkum Úlfari fyrir og hver veit nema að við tökum aftur sameiginlegan hádegismat hjá honum innan skamms.

 

Nú vonum við bara að þessi flotti matur í hádeginu hafi gefið rétta tóninn fyrir kvöldið og að Haukar landi sigri gegn FH.

Mætum snemma og mætum í rauðu í kvöld en leikurinn hefst kl. 19.30.

Áfram Haukar!