Stjarnan-Haukar mfl.ka.

Strákarnir okkar gerðu góða ferð í gærkvöldi til nágranna okkar hinu megin við hæðina og unnu Stjörnuna 29-36. Leikurinn var nokkuð jafn til að byrja með en Haukar náðu síðan góðu forskoti og staðan í hálfleik var 14-18. Seinni hálfleikinn byrjuðu þeir síðan með krafti og náðu afgerandi forystu, mestur var munurinn 10 mörk. Með sigrinum eru strákarnir búnir að koma sér enn betur fyrir á toppi Esso-deildarinnar og stefnan að sjálfsögðu sett á áframhaldandi sigra.

Stuðningsmenn Hauka fjölmenntu að vanda á leikinn og studdu vel við bakið á strákunum allan tímann og sýndu enn og aftur hvað Haukafjölskyldan er samhent.