Stelpurnar unnu grannaslaginn

Í dag fór fram leikur FH og Hauka í meistaraflokki kvenna. Stelpurnar okkar sigruðu leikinn 29-22. FH stelpur byrjuðu betur og komust í 3-1 en okkar stelpur jöfnuðu 3-3 og eftir það var aldrei spurning hvar sigurinn myndi enda. Munurinn varð mestur 8 mörk en FH stelpur náðu að minnka muninn í 22-18 og var það minnsti munur eftir að okkar stelpur gáfu í. Góð tvö stig í hús og stelpurnar okkar í efsta sæti ásamt Gróttu eftir tvo leiki með 4 stig.