Stelpurnar taka á móti Fjarðabyggð/Leikni

HaukarKvennalið Hauka í knattspyrnu tekur í dag á móti Fjarðabyggð/Leikni á Ásvöllum kl.14:00. Uppröðun leikja í deildinni er sérstök því þessi lið mættust einmitt fyrir viku en þá fóru Haukar með sigur af hólmi 1-0 í miklum rokleik fyrir austan.

Óhætt er að segja að leikurinn verði erfiður fyrir Haukastelpur því þrátt fyrir að sitja í neðsta sæti deildarinnar er Fjarðabyggð/Leiknir með fínt lið sem erfitt er að brjóta á bak aftur. Haukastelpur þurfa hins vegar að fara að girða sig í brók hvað markaskorun varðar og verður forvitnilegt að sjá hvað liðið gerir í þeim málum í dag.