Stelpurnar halda í Garðabæinn

Guðrún og stelpurnar í meistarflokki eiga mikilvægan leik fyrir höndum. Mynd: Vísir/Ernir

Á morgun, mándag, eiga stelpurnar í meistaraflokki í handbolta mikilvægan leik í toppbaráttunni þegar að liðið fer í Garðabæinn til þess að leika gegn Stjörnunni. Leikurinn verður leikinn í Mýrinni og hefst hann kl. 18:00.

Þessi leikur er hluti af 19. umferð Olís deildar kvenna og eru Haukastelpurnar í hörkubaráttu um deildarmeistaratitilinn en fyrir umferðina eru þær í 2. sæti með jafnmörg stig og Fram í 3. sætinu og 2 stigum á eftir Val í toppsætinu og 2 stigum á undan ÍBV í 4. sætinu. Stjarnan er svo í 5. sæti og verður þar sama hvernig 3 síðustu umferðir deildarinnar fara.

Það verðu því mikið undir í síðustu leikjum deildarinnar og því um að gera fyrir allt Haukafólk að fjölmenna í Mýrina kl. 18:00 á morgun, mánudag, og styðja stelpurnar í baráttunni. Áfram Haukar!