Stelpurnar fundu ekki taktinn í Vodafonehöllinni í kvöld

Marija var tekin föstum tökum í kvöld en var samt markahæst með 7/1 mark. Mynd: visir.isStelpurnar okkar fóru að Hlíðarenda í kvöld þar sem þær mættu sterku liði Vals í úrslitakeppni Olísdeildar kvenna. Það er skemmst frá því að segja að Valskonur höfðu töglin og haldirnar í þessu leik frá upphafi og sigruðu örugglega 31 – 20 en í hálfleik var staðan 17 – 11 eftir að Marija Gedroit hafði skorað beint úr aukakasti lengst utan af velli þegar leiktíminn var útrunninn. 

Haukakonur verða að vera baráttuglaðari og betur samstilltar ef þeir ætla sér eitthvað í þessu einvígi gegn vel spilandi liði Vals. Það var líka of mikið um tæknimistök, í raun hjá báðum liðum, en töluvert meira hjá Haukastelpum. Markvarslan var slök í kvöld og sóknarleikurinn á köflum of tilviljanakenndur og staður. En það býr meira í þessu liði okkar og nú fjölmennum við á leik nr. 2 sem verður í Schenkerhöllinni á þriðjudaginn kl. 19:30.

Mörk Hauka: Marija Gedroit 7/1, Karen Helga Díönudóttir 5, Gunnhildur Pétursdóttir 3, Viktoría Valdimarsdóttir 2, Ragnheiður Sveinsdóttir 1, Áróra Eir Pálsdóttir 1, Ragnheiður Ragnarsdóttir 1.

Markvarsla: Sólveig Björk Ásmundsdóttir 5 (24%), Tinna Húnbjörg 2 (12%).

Áfram Haukar!

 

 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…