Stelpurnar fá Stjörnuna í heimsókn í Olísdeildinni

Eftir góðan útisigur á HK í síðasta leik er komið að heimaleik gegn Stjörnunni hjá stelpunum okkar í handboltanum. Leikurinn er á morgun, laugardag, og hefst kl. 16:00. Stjarnan situr í 4. sæti deildarinnar með 8 stig, búnar að sigra í 4 leikjum en tapa 2. Okkar konur eru núna í 6. sæti með 6 stig, búnar að sigra 3 leiki en tapa 3.
Það verður hart barist um þessi tvö stig sem í boði eru á morgun og við mætum að sjálfsögðu öll á pallana og styðjum Haukastelpur til sigurs.

Áfram Haukar!