Staðfest leikjaniðurröðun í 1.deild karla

HaukarFótboltasumarið nálgast hratt og nú þegar þetta er skrifað eru innan við þrjár vikur í að mótið hefjist í 1.deild karla. Stelpurnar hefja hins vegar leik seinni part maí mánaðar í 1.deild kvenna og því hefur ekki verið gefin út endanleg leikjaniðurröðun þar.

Karlalið hauka leikur sem kunnugt er í 1.deild (næstefstu deild) og verður fyrsti leikur liðsins gegn Tindastóli laugardaginn 12. maí nk. á Ásvöllum. Í næsta leik þar á eftir sem spilaður er laugardaginn 19. maí fara strákarnir okkar á Egilsstaði og spila við Hött. Í þriðju umferð mæta Haukar Þórsurum frá Akureyri á Ásvöllum laugardaginn 26. maí.

Alla leiki sumarsins í 1.deild karla má sjá með því að smella hér á eftirfarandi slóð:

http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=26465&Rodun=U