Silja Ísberg til Hauka

Silja Ísberg hefur gengið frá tveggja ára samning við Handknattleiksdeild Hauka.  Silja er uppalin í ÍR en hefur fundið sér nýtt lið þar sem ÍR hefur dregið sig út úr N1 deild kvenna að sinni. 

Silja er öflugur leikmaður sem á fjölda landsleikja að baki með yngri landsliðunum.  Silja hefur lengst af leikið sem vinstri hornamaður.  Haukar stefna á að styrkja liðið talsvert fyrir næsta keppnistímabil og er koma Silju liður í þeirri áætlun.

Frekari tíðindi um leikmannamál hjá Haukum verða að sjálfsögðu birt hér á síðunni um leið og eitthvað gerist.