Sigur í Hafnarfjarðarslagnum

Haukar

Það má með sanni segja að Hafnarfjöðurinn sé rauður þessa dagana eftir að meistaraflokkur karla í handbolta unnu Hafnarfjarðarslaginn gegn FH á fimmtudag 25 – 20 eftir að hafa verið undir í hálfleik 12-11. Leikurinn var leikinn í Schenkerhöll okkar Haukamanna fyrir framan fjöldann allan af áhorfendum auk heiðursgesta frá Olís og DB Schenker en við sama tækifæri var endurritaður samstarfssamningur við DB Schenker um að heimavöllur Hauka beri áfram nafn DB Schenker.

Gestirnir byrjuðu leikinn betur og voru yfir mest allan fyrri hálfleik og þegar að 10 mínútur voru eftir að hálfleiknum voru þeir yfir  12 – 7 en þá tóku Haukar við sér og náðu að minnka muninn í 12 – 11 áður en hálfleiksflautan gall. FH byrjaði á að hafa frumkvæðið í byrjun seinni hálfleiks en þegar um 10 mínútur voru búnar af hálfleiknum þá komust Haukar yfir og eftir það var ekki aftur snúið og lönduðu Haukar að loknum góðum sigri 25 – 20.

Í liði Hauka átti Sigurbergur stórleik og skoraði 12 mörk einnig var Giedrius flottan leik í markinu og varði 19 skot, Jón Þorbjörn var líka flottur á línunni og skoraði 6 mörk. Annars var allt Haukaliðið gott í þessum leik og spiluðu sterka vörn ásamt flottum sóknarleik.

Búið er að breyta leiktímanum á næsta leik Hauka en leikurinn er á miðvikudag kl. 18:00 í Safamýri en leikurinn var færður vegna þess að Haukaliðið er að fara til Portúgals um næstu helgi þar sem liðið leikur liðið við SL. Benfica en nánar um þá leiki þegar að nær dregur.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…