Sigur á Nesmótinu

Strákarnir unnu alla sína leiki á Nesmótinu um helgina og virðast koma nokkuð vel undan sumri. Nýkrýndir Evrópumeistarar, Ásgeir Örn, Andri og Doddi eru að sjálfsögðu í fanta formi.

Leikmannahópurinn er stór og fengu kjúklingarnir að spreyta sig eins og þeir gömlu. Menn gerðu heilmikið af mistökum og eðlilega á eftir að slípa ýmislegt fyrir veturinn, en byrjunin lofar góðu.

Úrslit leikja:
Breiðablik-GróttaKR 24-27
Haukar-Valur 32-29
Breiðablik-Haukar 23-28
GróttaKR-Valur 21-24
GróttaKR-Haukar 22-27
Breiðablik-Valur 22-22