Síðasti deildarleikur fyrir jól – Haukar fara í Kaplakrika í kvöld

Egill brýst í gegnum vörn í leiknum gegn FH í síðustu viku. Mynd: Eva Björk
Egill brýst í gegnum vörn í leiknum gegn FH í síðustu viku. Mynd: Eva Björk

Eftir tvo flotta sigra í síðustu viku er strax komið að næsta verkefni hjá strákunum í handboltanum í kvöld. Þá fara Haukamenn í styðsta ferðalag sitt í útlileik er þeir mæta FH í Kaplakrika.

Liðin mættust einnig í síðustu viku í Schenkerhöllinni en þann leik unnu Haukamenn 32 – 25 og svo léku bæði lið aftur síðastliðinn fimmtudag, FH lék gegn Val og tapaði 32 – 25 á meðan Haukar léku gegn Aftureldingu en þann leik unnu Haukar 26 – 19.

Aðeins um leikinn á fimmtudaginn en eftir jafna byrjun þá gáfu Haukar í undir lok fyrri hálfleiks og voru yfir í hálfleik 14 – 11. Þeirri forusstu héldu þeir svo í seinni hálfleik og gott betur en eins og fyrr segir þá unnu Haukar að lokum 26 – 19. Markahæstir Haukamanna í leiknum voru Adam Haukur og Janus Daði með 6 mörk hvor en á eftir þeim komu Tjörvi og Einar Pétur með 4 mörk en í markinu var Giedrius flottur sem fyrr og varði vel.

Leikurinn í kvöld hefst kl. 19:30 í Kaplakrika og er þetta síðasti deildarleikur Haukamanna fyrir jól og janúarpásunua og er því um að gera fyrir Haukafólk að mæta og fjölmenn enda ekki langt að fara í þennan útileik. Það hefur marg oft sýnt sig að stuðningur áhorfenda skipir oft höfuð máli og sér í lagi í stórleik eins og Hafnarfjarðarslagurinn er. Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…