Reynslan vóg þungt

Þeir voru sáttir og glaðir leikmenn Haukar 2 eftir sigurinn gegn FylkiEftir kvennaleikinn í gær var annar leikur í Coca Cola bikarnum í Schenkerhöllinnni. Þar áttust við Haukar 2 og Fylkir. Fylkir leikur í 1. deild en Haukar 2 leika í utandeildinni og þar utan æfa þeir ekkert. Það hallaði því fremur á þá „gömlu“ á pappírunum fyrir þennan leik. En leikmenn Haukar 2 reyndust á köflum enn geta spilað príðis handbolta þrátt fyrir að hraðinn hafi kannski ekki verið mikill en skynsemin vóg það oft upp. Sú ótrúlega staða kom upp í leiknum að Haukarnir voru komnir með 6 marka forskot 22 – 16 en misstu það þó klaufalega frá sér sem skrifast á þreytu og óþolinmæði í sókninni sem Fylkismenn refsuðu með hraðaupphlaupum og náðu að jafna leikinn 22 – 22. Haukar náðu þó að komast aftur í gang og síðustu mínúturnar voru æsispennandi. Fylkir komst yfir en Haukar jöfnuðu og komust yfir 29 – 28. Í síðustu sókn Fylkis fengu þeir dæmt víti sem þeir náðu ekki að nýta og Haukar skoruðu síðasta mark leiksins og góður sigur, 30 – 28 var staðreynd.

Í liðinu hjá Haukum eru margir reyndir handboltamenn sem hafa nýverið eða fyrir löngu síðan lagt keppnisskóna í efstu deild á hilluna. Það skiluðu allir sínu en Halldór Ingólfsson var drjúgur eins og venjulega þar til hann varð að fara af velli vegna tognunar og Gylfi Gylfason var frábær í horninu. Keli og Einar Jóns var seigir að vanda og ekki má heldur gleyma framlagi markvarðarins, sem var „keyptur“ til Hauka á keppnisdegi, Erlingur Reyr eða Krummi. Hann sýndi á köflum stórkostlega takta í markinu, sérstaklega í fyrri hálfleik.

Þjálfari og framkvæmdastjóri liðsins er Örvar Guðmundsson og var hann að rifna úr stolti í leiks lok með árangur „unganna“ sinna. 

Nokkuð var af áhorfendum sem skemmtu sér hið besta og eiga þeir góðar þakki fyrir stuðninginn. 

Mörk Hauka: Halldór Ingólfsson 6, Þorkell Magnússon 6, Gylfi Gylfason 5, Einar Jónsson 4, Sigurjón Sigurðsson 3, Jón Karl Björnsson 2v, Leon Einar Pétursson 1, Jens Gunnarsson 1, Vigfús Þormar 1, Haukur Jónsson 1,

Áfram Haukar!

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…