Rétta hugarfarið skilaði fjórum sigrum um helgina hjá 5. fl. kvenna (yngra ár)

Stelpurnar sáttar með gullpeningana sínaStelpurnar í 5. fl. kvenna halda áfram á sigurbraut. Um helgina spilaði yngra árið á sínu öðru móti á þessu tímabili. Þær byrjuðu í þrjðju deild og unnu sig auðveldlega upp um deild í fyrsta mótinu. Um helgina spiluðu þær því í annarri deild  og fengu miklu meiri mótspyrnu heldur en í fyrsta mótinu.

Þrátt fyrir að „bogna“ á köflum brotnuðu þær aldrei og sýndu af sér mikla baráttu og sigruðu í öllum leikjum sínum og eru því komnar í fyrstu deild. Þess má geta að 5 leikmenn úr hópnum er að spila upp fyrir sig, eru á eldra ári í 6. flokki.

 Úrslit leikjanna:

Haukar – Fjölnir  15 – 12

Haukar – ÍR  13 – 12

Haukar – Fram GH1 10 – 9

Haukar – Afturelding 18 – 5

Langmarkahæst í þessum fjórum leikjum var Hólmfríður en hún skoraði 32 af 56 mörkum liðsins. Nýtingin hjá henni var um 76%, sem er afar vel gert. Einnig var markvarslan fín en Birta var með 37% markvörslu og Katla 52%.

 

Til hamingju stelpur og áfram Haukar.