Olísdeild karla í Schenkerhöllinni í kvöld, fer bikar á loft?

Ná Matthías Árni og félagar í mfl. karla að lyfta bikar á Ásvöllum í kvöld?Í kvöld, fimmtudag, verður leikin næst síðasta umferð Olísdeildar karla og fá Haukar lið Akureyrar í heimsókn í Schenkerhöllina. Leikurinn hefst kl. 19:30. Liðin hafa mæst tvisvar í deildinni í vetur og í bæði skiptin hafa Haukar haft betur, unnu 22 – 30 á Akureyri og 26 – 20 að Ásvöllum. Staðan á liðunum í Olísdeildinni er mjög ólík. Haukar eru efstir og ef þeir klára leikinn gegn Akureyri eru þeir orðnir deildarmeistarar.

Ef Haukar misstíga sig gegn Akureyri og Valur vinnur ÍBV þá er staðan á milli Hauka og ÍBV óbreytt og ÍBV getur þá ekki náð Haukum að stigum í síðasta leiknum sem er einmitt heimaleikur okkar manna gegn ÍBV. Ef Haukar tapa og ÍBV vinnur Val þá getur síðasti leikurinn, á mánudaginn 14. apríl, á milli Hauka og ÍBV orðið úrslitaleikur um deildarmeistaratitilinn. Akureyri situr í næst neðsta sæti deildarinnar með 15 stig og á nú möguleika á að losa sig úr því sæti með því að ná sigri í þessum tveimur leikjum sem eru eftir af deildinni. Þetta er staða sem hefur þróast þeim í vil í undanförnum leikjum og því munu þeir væntanlega berjast eins og ljón fyrir þessum stigum sem eru í boði í kvöld á Ásvöllum. 

Nú mæta allir og styðja Hauka til sigurs og það væri auðvitað frábært ef þeir ná að klára þetta í kvöld og lyfta bikar sem deildarmeistarar.

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…