Olísdeild karla í kvöld, Haukar – Akureyri kl. 18:00

Hörður Davíð er sannkallaður Haukur í horni og liðstjóri hjá mfl. karla en því hefur hann sinnt svo lengi að elstu menn muna ekki hver var á undan honumEftir frækilegan sigur á ÍR í síðasta leik er komið að heimaleik gegn Akureyri en liðin spila í dag, fimmtudag,  í Schenkerhöllinni og hefst leikurinn kl. 18:00.
Haukastrákarnir eru sem stendur í efsta sætinu með 19 stig eftir 12 leiki og með 5 stiga forystu á ÍBV og Fram sem eru jöfn í öðru sætinu með 14 stig. Lið Akureyrar hefur átt erfitt uppdráttar í vetur og hafa mikil meiðsli sett strik í reikninginn hjá þeim. Þeir eru sem stendur í 7 sæti með 8 stig eftir 11 leiki, eru sem sagt í fallsæti. Það má þó ekki vanmeta lið Akureyrar því á góðum degi geta þeir náð stigum af öllum liðunum í deildinni.
Það er mikilvægt að fá góða mætingu á leikinn og öflugan stuðning. 

Þess má geta fyrir þá sem ekki komast á leikinn að hann verður sýndur beint á Hauka TV.

Matur eftir leik og nýskráningar í Hauka í horni.
Strax eftir leikinn verðum Haukum í horni boðið upp á mat og léttar veitingar í forsal samkomusalarins. Einnig bjóðum við þar nýja félaga velkomna en skráning í klúbbinn munu fara fram á staðnum. 

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…