N1 deild karla, Haukar – HK kl. 19.30

Þórður Rafn Guðmundsson stórskytta HaukamannaÍ dag, 10. febrúar kl. 19.30, taka Haukastrákarnir á móti HK í N1 deild karla. Þessi lið eru bæði um miðja deild með jafnmörg stig, Haukar eru í fjórða sæti og HK í því fimmta. Bæði lið eru með 14 stig en Haukar eru með betra markahlutfall. Það er mikið atriði að Haukar nái að landa sigri í þessum leik til að styrkja stöðu sína í efri hluta deildarinnar.
Það er mjög mikilvægt að fá góða mætingu á leikinn og að fólk skemmti sér á pöllunum.

 

Gildi hvatningar fyrir leikmenn er ómetanlegt og eykur líkurnar á sigri til muna.

Grillið verður í gangi frá 18.45 (hamborgarar og pylsur).

Fyrir leik mun nýráðinn yfirþjálfari hkd. Hauka, Gísli Guðmundsson, flytja fyrirlestur um
þau kynslóðaskipti sem eru að eiga sér stað í handboltanum, hjá Haukum og fleiri félögum.

Gísli mun í þessu sambandi fara yfir gildi þess að hlúa að vel að grasrótinni til að leggja línurnar að bjartri framtíð.
Fyrirlestur Gísla hefst stundvíslega kl. 19.00 (hálftíma fyrir leik).
Mætum snemma og fáum okkur að borða og hlustum á flottan fyrirlestur. 

Rétt fyrir leik kemur svo Halldór Ingólfsson þjálfari mfl. Hauka og ræðir leikinn sem er framundan og svarar spurningum.

 

Áfram Haukar!

    L U J T Mörk Stig
1 Akureyri 12 10 1 1 354:311 21
2 Fram 12 8 1 3 398:343 17
3 FH 12 7 1 4 342:323 15
4 Haukar 12 6 2 4 307:303 14
5 HK 12 7 0 5 367:377 14
6 Valur 12 4 0 8 308:336 8
7 Afturelding 12 2 0 10 297:336 4
8 Selfoss 12 1 1 10 335:379 3

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…