Minningarmót Eiðs Arnarsonar

Föstudaginn 2. febrúar og laugardaginn 3. febrúar verður haldið minningarmót Eiðs Arnarsonar á Ásvöllum og á Strandgötu. Fjögur lið taka þátt á mótinu, Haukar, Haukar U, Fylkir og Stavanger frá Noregi. Stavanger er lið Haukamannsins Halldórs Ingólfssonar.

Leikjaprógram mótsins er svona:
Föstudagur    –    Ásvellir
19:00    Fylkir – Haukar U
20:30    Haukar – Stavanger

Laugardagur – Strandgata
09:30    Haukar U – Haukar
11:00    Stavanger – Fylkir

Laugardagur – Ásvellir
18:00    Fylkir – Haukar
19:30    Stavanger – Haukar U

Við hvetjum alla til að mæta á mótið og sjá meðal annars lið okkar manns í Noregi.