Nú er Íslandsmótið í handbolta að hefjast, bæði í karla og kvennaflokki. Eins og margoft hefur komið fram munu Haukar senda til leiks tvö lið í meistaraflokki karla. Haukar munu hefja leikinn í úrvalsdeild karla á miðvikudaginn klukkan 20:00 í Austurbergi, þegar við sækjum ÍR heim. Stelpurnar hefja leik einnig á miðvikudaginn en þá fá þær lið Akureyrar í heimsókn klukkan 18:00. Haukar U hefja keppni í 1.deild karla sunnudaginn 1.október þegar þeir taka móti Selfossi klukkan 20:00.
Vegna leiksins falla allar æfingar handknattleiksdeildar niður á Ásvöllum til klukkan 20:00 miðvikudaginn 27.september.
ÁFRAM HAUKAR!!