Mánuður í Íslandsmót

Nú er rétt um mánuður í að Íslandsmótið í handknattleik hefjist. Já þið lásuð rétt… sumarið er á enda runnið og enn einn handboltaveturinn er að ganga í garð. Íslandsmótið hefst í kringum 18. september hjá strákunum og 20. september hjá stelpunum.

Niðurröðun Íslandsmótsins er enn ekki fullkláruð en vonandi mun það klárast fljótlega og endanlega mótaniðurröðun því fara að birtast landsmönnum. Samkvæmt drögum sem hægt er að finna á heimasíðu Handknattleikssambandsins leika strákarnir sinn fyrsta leik 18. september og stelpurnar sinn fyrsta leik 20. september. Taka bæði liðin á móti liði Stjörnunnar í fyrsta leik. Dagsetningarnar geta eitthvað breyst en að sjálfsögðu munum við birta endanlega niðurröðun eins fljótt og hægt er.

Strákarnir okkar eru núverandi Íslandsmeistarar. Að sjálfsögðu gerum við Haukamenn okkur vonir um það að strákarnir haldi titlinum á Ásvöllum. Einnig vonum við að þeir bæti við titlum, s.s. bikarmeistaratitlinum. Einnig vonum við að sjálfsögðu að einhverjir titlar skili sér í hús hjá stelpunum okkar.

Strákarnir okkar leika í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í ár, en þeir léku ekki í Evrópukeppni í fyrra. Strákarnir okkar drógust á móti liði frá Kýpur, Cyprus Collage. Báðir leikirnir verða leiknir helgina 6. og 7. september. Sigri strákarnir í þessum viðureignum leika þeir í riðli með MKB Veszprém KC frá Ungverjalandi, SG Flensburg-Handewitt frá Þýskalandi og ZTR Zaporozhye frá Úkraníu.

En nú er bara málið að fara að hita sig upp fyrir veturinn og rifja upp gamla leiki og fleira. Við munum hér á síðunni birta upprifjanir af gömlum leikjum og fleira næstu vikurnar.

ÁFRAM HAUKAR!!!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…