Lokahóf HSÍ – Verðlaunahafar

Lokahóf HSÍ er nú í fullum gangi á Broadway, en fyrr í kvöld voru veittar viðurkenningar fyrir þá leikmenn, þjálfara og dómara sem skara hafa framúr í vetur.
Þeir sem fengu viðurkenningar fyrir vel unnin störf í N1-deild Karla og kvenna og 1.deild karla eru ;

Háttvísisverðlaun kvenna; Hanna Guðrún Stefánsdóttir, Haukar
Háttvísisverðlaun karla; Heimir Örn Árnason, Stjarnan

Unglingabikarinn; Selfoss
Valdimarsbikarinn; Gunnar Berg Viktorsson, Haukar

Markahæst; Natalia Cieplowska, HK
Markahæstur; Heimir Örn Árnason, Stjarnan
Markahæstur, 1.deild karla; Guðmundur Þórir Pedersen, FH

Besti varnamaður kvenna; Pavla Nevarilova, Fram
Besti varnarmaður karla; Arnar Pétursson, Haukar
Besti varnarmaður 1.deild karla; Sveinn Þorgeirsson, Víking

Besti sóknarmaðurinn kvenna; Eva Barna, Val
Besti sóknarmaðurinn karla; Andri Stefan, Haukar
Besti sóknarmaðurinn 1.deild karla: Aron Pálmarsson, FH

Besti markmaður, N1-deild kvenna; Florentina Stanciu, Stjarnan
Best markmaður, N1-deild karla; Ólafur Gíslason, Valur
Besti markmaður, 1.deild; Haukamaðurinn, Björn Viðar Björnsson, Víking

Bestu dómararnir; Anton Pálson og Hlynur Leifsson
Bestu umgjörð kvenna; Valur
Bestu umgjörð karla; Haukar

Besti þjálfarinn, kvenna; Einar Jónsson, Fram
Besti þjálfarinn, karla; Aron Kristjánsson, Haukar
Besti þjálfarinn, 1.deild; Reynir Þór Reynisson, Víkingur

Efnilegasti leikmaður, kvenna; Stella Sigurðardóttir, Fram
Efnilegasti leikmaður, karla; Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK
Efnilegasti leikmaður 1.deildar karla; Aron Pálmarsson, FH 

Besti leikmaður, kvenna; Pavla Nevarilova, Fram
Besti leikmaður, karla; Heimir Örn Árnason, Stjarnan
Besti leikmaður 1.deildar karla; Aron Pálmarsson, FH

Semsagt fengu við Haukafólk sex viðurkenningar og svo auðvitað Björn Viðar, leikmaður Víkings, sem er á láni frá Haukum. Við óskum Haukafólkinu sem fengu viðurkenningar á lokahófi HSÍ til hamingju og auðvitað öllum hinum verðlaunahafana.
En fyrst og fremst óskum við Hauka strákunum til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn.

Áfram Haukar
               – Arnar Daði Arnarsson skrifar.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…