Leikur Hauka og Leiknis verður kl.19:15 á fimmtudag

HaukarVið minnum á stórleik Hauka gegn Leikni R. í dag kl. 19.15 en hann fer fram á Schenkervellinum á Ásvöllum.

Frá kl. 18:00 verður boðið upp á grillaða hamborgara á vægu verði og eru stuðningsmenn hvattir til að fjölmenna enda um afar þýðingarmikinn leik að ræða.  

Deildin hefur sjaldan verið jafn spennandi en Haukar sem eru með 34 stig eru í öðru sæti deildarinnar með jafn mörg stig og Fjölnir en með betri markatölu.  Grindavík er í toppsætinu með 36 stig.  Leiknir er í sjötta sæti með 28 stig.

Fyrri leik Hauka og Leiknis í sumar lauk með 0 – 0 jafntefli en hann var engu að síður mjög fjörugur og var Sigmar Ingi, markvörður okkar Hauka-manna, okkar besti maður.

Í dag ætlum við að fylgja eftir frábærum 2 -1 sigri gegn Víking R. og því er gríðarlega mikilvægt að stuðningsmenn fjölmenni á leikinn.

Áfram Haukar!