Glæsilegu Golfmóti Hauka lokið!

Föstudaginn sl. var haldið á Hvaleyrarvelli árlegt golfmót Hauka og voru 100 Haukamenn út um allan völl að reyna við “Baddaskjöldinn” og “Rauða jakkann.” Við fengum þessa fínu frétt í láni frá þeim heiðursmönnum hjá Keili, en hún birtist upphaflega á keilir.is

Veðurguðinn bauð uppá nánast engan vind en lét í staðinn rigna aðeins á Haukafólkið. Í þessu móti er keppt um Rauða Jakkann í punktakeppni og einnig titilinn Öldungameistari Hauka til minningar um Ólaf H.Ólafsson. Baddaskjöldinn hlýtur svo sá Haukamaður sem spilar best í Höggleik. Fjöldi fólks var viðstadd verðlaunaafhendingu sem fór fram í golfskálanum nú í kvöld. Glæsileg verðlaun voru veitt og var dregið úr skorkortum í lokinn. Golfklúbburinn Keilir og Haukar þakka öllum kærlega fyrir stuðninginn og skemmtilegt mót.      

Hér koma svo helstu úrslit:

Punktakeppni
1. sæti   Ólafur Valgeir Guðjónsson 41
2. sæti   Kristján Sigurðsson 39
3. sæti   Guðmundur Ö.Óskarsson 39

Höggleikur án forgjafar
1. sæti   Aron Bjarni Stefánsson     71 högg

Nándarverðlaun
4. braut Rúnar Guðjónsson 2,13 cm
6. braut  Hilmar Eiríksson 2,47 cm
10. braut  Ólafur Valgeir Guðjónsson 1,20 cm
16. braut  Gísli Þór Sigurbergsson 2,60 cm
18. braut  Arnar Bjarnasson 4,75 cm  (næst holu í 2 höggum)

Fleiri myndir er svo hægt að sjá á Facebook síðu Keilis. http://www.facebook.com/Golfverslun

Stjórn Hauka þakkar mótsstjórn og öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóg við að gera mótið sem veglegast úr garði.

 

Ólafur Guðjónsson í Rauða jakkanum!