Veturinn 2013-2014

HaukarDeildin hefur skákæfingar fyrir fullorðna í vetur frá kl. 19:30 á þriðjudagskvöldum. Æfingarnar eru staðsettar í félagsaðstöðunni á Ásvöllum og eru allir velkomnir. Þær eru ókeypis.

Félagið rekur einnig unglingastarf og eru æfingar einu sinni í viku, einnig á þriðjudögum frá kl. 17:00-18.00. Ef þátttaka er mikil er hópnum skipt í annars vegar byrjendur og yngri iðkendur og hins vegar eldri krakkar.

Þjálfari er Páll Sigurðsson, sími: 860-3120 og netfangið: pall_sigurdsson@hotmail.com

Skákdeild Hauka tekur fullan þátt í starfi skákhreyfingarinnar í landinu og heldur úti mörgum sveitum í Íslandsmóti skákfélaga. Ef þið hafið áhuga á að taka þátt í starfi deildarinnar, endilega hafið þá samband.