Leikir á Schenkervellinum í kvöld og á morgun

HaukarMeistaraflokkar Hauka í knattspyrnu eiga leiki í kvöld og á morgun. Stelpurnar leika sinn síðasta leik í sumar þegar þær taka á móti Sindra á Schenkervellinum á Ásvölum kl.20:00 í kvöld. Leikurinn verður leikinn í fljóðljósum ef fólk skyldi velta fyrir sér tímasetningunni.

Strákarnir eiga svo mikilvægan leik gegn BÍ/Bolungarvík á morgun, laugardag kl.14:00. Ekkert nema sigur kemur til greina hjá Haukum því allt annað en þrjú stig þýðir að liðið er endanlega úr leik í baráttunni um sæti í Pepsídeildinni. Leikurinn fer fram á rennisléttum Scenkervellinum á Ásvöllum.

Nú er bara að vona að bæði lið fara að skella sér á skotskóna því að það hefur gengið annsi brösulega að skora í sumar! Allir á völlinn áfram HAUKAR!