Jóhanna Björk í Hauka

Jóhanna Björk mun spila undir merki Hauka næsta tímabiliðJóhanna Björk Sveinsdóttir hefur samið við félagið til eins árs og mun spila með Haukaliðinu í Dominos-deild kvenna á komandi leiktíð.

Jóhanna er 23 ára framherji, 180 cm á hæð og uppalin í Hamri frá Hveragerði þar sem hún spilaði upp yngri flokkana. 2009 færði hún sig um set og lék með KR í tvö tímabil en á síðustu leiktíð var hún með liði Breiðabliks í 1. deildinni.

Jóhanna á að baki 2 landsleiki og 18 landsleiki með yngri landsliðum Íslands.

Gunnhildur Gunnars, Lovísa Hennings og Dagbjört Samúels sömdu einnig við félagið og sjást hér á myndinni fyrir neðan ásamt Jóhönnu.