Gullni Örninn sigurvegari á Hellu

Morten, Emil, Gunnar og Stefán fagna sigurverðlaunum sínumÞað voru nokkrir Haukamenn sem að skelltu sér austur yfir heiði og léku á 3 á 3 móti á Hellu í körfuknattleik. Þeir Emil Örn Sigurðarson, Stefán Þór Borgþórsson, Gunnar Magnússon og Morten Smiedowich léku undir merkjum Gullna Arnarins að þessu sinni og stóðu uppi sem sigurvegarar á mótinu.

Mótið var skemmtilegt í alla staði þó svo að fleiri lið hefðu mátt vera skráð til leiks en alls voru fimm lið sem að tóku þátt og unnu Gullni Örninn alla sína leiki.

Frétt um mótið á karfan.is