Kærkominn 4-1 sigur á Eyjamönnum

Loksins tókst að landa sigri eftir nokkra bið, þegar við unnum Eyjamenn 4-1 á Ásvöllum í gær. Í undanförnum leikjum hafa strákarnir verið óheppnir að að ná ekki stigum; á móti Val, Fylki og Eyjamönnum (í Eyjum) en þessir leikir voru jafnir og hefðu getað farið á hvorn veginn sem var.
Sigurinn á Eyjamönnum er gott veganesti í æfinga- og skemmtiferðina til London. Vonandi koma strákarnir til baka með neistann sem þarf til að klára jafna leiki.