Góður árangur á Rey-Cup

3. og 4. fl. kvenna
3. flokkur kvenna sigraði í sínum flokki á Rey-Cup sem fram fór í veðurblíðunni í laugardalnum nú um helgina. Steplurnar unnu til verlauna sem sóknarlið mótsins en þær skoruðu 57 mörk sem er frábær árangur. Stelpurnar í 4. flokk A og B höfnuðu í öðru sæti eftir að hafa sigrað sína riðla í riðlakeppni mótsins. A liðið sigraði hraðmót Rey-Cup á laugardag. Fjöldi foreldra, systkina og aðstandenda fylgdust með og veittu stelpunum stuðning á mótinu.
Til hamingju Haukastelpur.